Nafn? Þorbjörg Inga Ásbjarnardóttir
Hvar býr ungi bóndinn? Á Þorgrímsstöðum, Vatnsnesi.
Hvenær byrjaðir þú búskap? Í apríl 2005
Fjölskylda? Bý með Jóhannesi Óskari Sigurbjörnssyni og fjórum börnum sem við eigum. Þau heita Ásbjörn Edgar 12 ára, Alexander Victor 6 ára, Arna Ísabella og Steinunn Daníela 4 ára.
Með hvað býr ungi bóndinn? Við erum með 450 kindur, 8 hryssur, 3 Border Collie hunda, nokkrar hænur og 2 ketti.
Menntun og fyrri störf? Lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla og fór svo í Kennaraháskóla Íslands. Síðan ákváðum við að flytja norður og kaupa jörð svo ég kláraði aldrei kennaranámið. Bjuggum áður í Hafnarfirði og þá vann ég m.a hjá Gámaþjónustunni, á leikskóla og víðar með skólanum.
Áhugamál? Finnst gaman að ferðast bæði utan og innanlands. Hlusta mikið á tónlist og finnst frábært að fara á góða tónleika.
Hver eru helstu framtíðarplönin varðandi búskapinn? Stækka búið í ca. 600 hausa og hámarka afurðir eftir hverja á.
Hverju þarf að breyta svo íslenskur landbúnaður verði enn öflugri? Halda sig áfram utan ESB, framleiða áfram okkar frábæru íslensku afurðir og reyna að markaðssetja þær og nýta eins og hægt er.
Hvernig er hægt að efla nýliðun í íslenskum landbúnaði? Fullorðnir bændur sem búa á sínum jörðum þurfa að passa að hleypa ungu áhugasömu fólki að í tíma. Ekki búa svo lengi að þeir komist engan veginn yfir þetta og fólkið sem áður vildi kaupa jarðirnar og fara að búa sé farið eitthvað annað og búið að koma sér fyrir þar. Leyfa ungu fólki sem hefur áhuga á að búa í sveit að komast að, annars fara sveitirnar bara í eyði ef enginn fær að taka við. Það er svo rosalega kostnaðarsamt að kaupa jörð og bústofn og öll tæki í dag og byrja að búa frá grunni að ég sé eiginlega ekki hvernig það á að ganga upp fyrir venjulegt fólk.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambakjöt í ýmiss konar útfærslum.
Hvað finnst þér um SUB? Líst bara vel á!
Hvernig verður landbúnaður á Íslandi árið 2030? Vonandi í blóma og góðu gengi með hreinar og frábærar framleiðsluafurðir í mörgum myndum!
Hvaða lag ertu líklegust til að syngja inn á klósetti félagsheimilisins á gleðisamkomu í sveitinni? Ég held ég sé ekki líkleg til að syngja neitt þar inni!!! Þessa dagana hlusta ég mest á Amy Winehouse svo lög með henni eru efst í kollinum núna!
Nefndu 3 hluti sem þú myndir taka með þér í göngur/fjallferð? GSM síma, plastglas og nesti.
Lífsmottó? Hef ekkert eitt en “ þetta reddast “ er oft notað! Hef ekki tilhneigingu til að taka hlutina allt of alvarlega eða hafa áhyggjur.
Uppáhalds:
dýr? Auðvitað íslenska sauðkindin- algjörir snillingar!!
búgrein? Sauðfjárrækt
árstími? Sumarið er tíminn….
stjórnmálaflokkur? Þarf ég að svara þessu- er ekki sama siðspillingin í þessu öllu? Enginn í uppáhaldi þar þessa dagana.
dagur vikunnar? Föstudagur
matur? Grillað eða steikt íslenskt lambakjöt, íslenskt grænmeti og nýjar kartöflur með góðri sósu.
drykkur? Vatnið okkar er auðvitað frábært en verð að viðurkenna að ég er algjör pepsi og coke fíkill!
dráttarvélategund? New Holland- eða eru það ekki þessir bláu;)
Ef ykkur stæði til boða að búa í annarri sveit en þið eruð núna búsett í, hvaða sveit yrði fyrir valinu? Syðri-Þverá í Vesturhópi- flott jörð og veðrið oft alveg æðislegt þar!
Hvaða sæðingarstöðvarhrút mælirðu með að ungir bændur noti núna á yfirstandandi sæðingarvertíð? Ég mæli auðvitað með Kveiksættinni, eigum frábæran hrút undan Kveik og margar afbragðsær útfrá honum.
Eitthvað að lokum? Bara minni á núna fyrir jólin að íslenska lambakjötið er auðvitað langbesti jólamaturinn.

