Ungur bóndi

ÞÚ ERT HÉR: FORSÍÐA Ungi bóndinn Ungi bóndi mánaðarins Ungi bóndi mánaðarins (Október 2011)

Ungi bóndi mánaðarins (Október 2011)

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

LM_001Nafn? Maríus Snær Halldórsson og Lára Björk Sigurðardóttir

Hvar býr ungi bóndinn? Presthólum, Núpasveit

Hvenær byrjaðir þú búskap? Vorum búsett á Sigtúni í Öxarfirði tvö síðastliðin  ár en fluttum nú í sumar í Presthóla þar sem við hyggjumst ganga inn í búskap Sigurðar Árnasonar og Öldu Jónsdóttur með tíð og tíma.

Fjölskylda? Eigum saman soninn Þórhall Sölva, 2 ára.

Með hvað býr ungi bóndinn? Sauðfé (106), nautgripi (7), hross (14), hunda (2) og hænur (10)

Menntun og fyrri störf? Erum bæði búfræðingar frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Maríus er auk þess kúreki, rúnings-, járningar- og örmerkingarmaður og Lára lauk BS-námi í búvísindum árið 2009 og tók kennsluréttindi árið 2010.

Áhugamál? Hvers kyns ræktun og útivist.

Hver eru helstu framtíðarplönin varðandi búskapinn? Að fjölga bæði fé og nautgripum og halda áfram markvissri sauðfjár-, nautgripa-, hrossa- og hundarækt með viðeigandi uppbyggingu í huga.

Hverju þarf að breyta svo íslenskur landbúnaður verði enn öflugri? Vitundavakning þjóðfélagsins um ágæti innlends landbúnaðar og fækka milliliðum í sölu á afurðum.

Hvernig er hægt að efla nýliðun í íslenskum landbúnaði? Auðvelda aðgengi að bújörðum og lántöku.

Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Kindakjöt, á hvaða formi sem er.

Hvað finnst þér um SUB? Frábær samtök sem stuðla að því að halda okkar merkjum á lofti.

Hvernig verður landbúnaður á Íslandi árið 2030? Þetta verður alltaf sama baslið en öflugur verður hann.

Hvaða lag ertu líklegust til að syngja inn á klósetti félagsheimilisins á gleðisamkomu í sveitinni? Pamela í Dallas.

Nefndu 3 hluti sem þú myndir taka með þér í göngur/fjallferð? Hníf, Jameson og hund.

Lífsmottó? Það sem ekki drepur þig, það herðir þig bara.

Uppáhalds:

LM_002dýr? Sauðfé

búgrein? Sauðfjárrækt

árstími? Haust og vor

stjórnmálaflokkur? Þetta er allt sama „shittið“

dagur vikunnar? Föstudagur

matur? Kótilettur í raspi

drykkur? Vatn, með smá humlum í.

dráttarvélategund? John Deer

Ef ykkur stæði til boða að búa í annarri sveit en þið eruð núna búsett í, hvaða sveit yrði fyrir valinu? Innst í Öxarfirði (í sælunni).

Myndir þú selja Huang Nubo jörðina þína fyrir skrílljón kall? (spyr Jóna Björg Hlöðversdóttir, ungi bóndi septembermánaðar). Okkur ber ekki saman um þetta svar.

Eitthvað að lokum? Aldrei að gefa sig.