Ungur bóndi

ÞÚ ERT HÉR: FORSÍÐA Ungi bóndinn Ungi bóndi mánaðarins Ungi bóndi mánaðarins (September 2011)

Ungi bóndi mánaðarins (September 2011)

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

 

JBH_001Nafn? Jóna Björg Hlöðversdóttir

Hvar býr ungi bóndinn? Ég bý á Björgum, ysta bæ í Útkinn í Þingeyjarsýslu

Hvenær byrjaðir þú búskap? Ég hef í raun ekki hafið búskap enn, en hef verið viðriðin búskapinn síðan ég var nokkurra vikna gömul í vagni í fjósinu með foreldrum mínum.

Fjölskylda? Foreldrar mínir eru Hlöðver Pétur Hlöðversson og Kornína Björg Óskarsdóttir, bændur á Björgum. Er í miðið af þremur systrum, eldri systur, Ásta Ósk og yngri systur, Þóru Magneu.

Með hvað býr ungi bóndinn? Á Björgum er búið með kýr og kindur. Kýrnar eru um 40 talsins og kindurnar eru 160. Að sjálfsögðu má ekki gleyma verðandi smalahundinum Snata.

Menntun og fyrri störf? Ég lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 2005 og BS gráðu í búvísindum frá LBHÍ nú í vor. Í millitíðinni var stoppað á ýmsum stöðum innanlands, t.d. í lögfræði, stóriðju, ferðaþjónustu og að sjálfsögðu landbúnaði.

Áhugamál? Fyrir utan mikinn áhuga á málefnum landbúnaðarins er ég mikill lestrarhestur og er alltaf með góðan bunka af bókum á náttborðinu, þó það sé ekki alltaf tími til lesturs.

Hver eru helstu framtíðarplönin varðandi búskapinn? Það er á döfinni að efla sauðfjárræktina og svo má alltaf bæta sig á öllum sviðum.

Hverju þarf að breyta svo íslenskur landbúnaður verði enn öflugri? Það þarf að efla samstöðu á milli bænda, sama í hvaða búgrein þeir starfa. Við erum öll að keppa að sama markinu og það er hagur allra að sem flestir starfi í landbúnaði.

Hvernig er hægt að efla nýliðun í íslenskum landbúnaði? Ég hef nokkra trú á að nýtt jarðafrumvarp muni bæta aðgengi ungs fólks að landi. Það er hagsmunamál landbúnaðarins í heild sinni að fá nýtt og ferskt fólk inn í greinina og það þurfa þeir eldri og reyndari að hafa í huga.

Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambakjöt í öllum sínum myndum.

JBH002Hvað finnst þér um SUB? Þetta eru merkissamtök og ég er mjög stolt af því að vera einn af stofnfélögum samtakanna og tel að þau eigi eftir að hafa mikil áhrif í framtíðinni.

Hvernig verður landbúnaður á Íslandi árið 2030? Með eða án ESB mun landinn hafa áttað sig á þeim gildum sem eru mikilvæg. Ekki verður lengur horft í blindni á hagfræðilega útreikninga heldur munu fjölskylduvænar einingar ráða för. Þetta mun verða til þess að byggð verður á öllu landinu, auðlindir verða nýttar skynsamlega og búið verður í haginn fyrir komandi kynsslóðir.

Hvaða lag ertu líklegust til að syngja inn á klósetti félagsheimilisins á gleðisamkomu í sveitinni? Að lífið sé skjálfandi lítið gras er alltaf gott til að rífa upp stemmninguna.

Nefndu 3 hluti sem þú myndir taka með þér í göngur/fjallferð? Nesti, hælsærisplástra og símann til að hringja eftir hjálp þegar ég villist.. !

Lífsmottó? Sameinuð stöndum vér, sundruð föllum vér

 

Uppáhalds:

dýr? Kýr

búgrein? Nautgriparækt

árstími? Sumarið, kýrnar á beit í haganum og heyskapur frá morgni til kvölds

stjórnmálaflokkur? Vinstri-Græn

JBH003dagur vikunnar? Það myndi vera fimmtudagur, sem eru minjar frá dvöl minni á Hvanneyri.

matur? Slátur, í öllum sínum útgáfum en heit lifrarpylsa með kartöflustöppu slær flest út.

drykkur? Það myndi vera Mojito en sá drykkur gæti talist til nokkurs konar áhugamáls

dráttarvélategund? Já, John Deere er sko málið.

 

Ef þér stæði til boða að búa í annarri sveit en þú eruð núna búsett í, hvaða sveit yrði fyrir valinu? Hverjum finnst sinn fugl fagur og þá sérstaklega heimasveitin, en mér þætti forvitnilegt að búa á stað þar sem ekki er hafgola !

Hver er þessi Steingrímur sem allir eru að tala um? (spyrja Oddný Steina og Ágúst, ungu bændur ágústmánaðar)? Er hann ekki einhver ofurhetja?