Ungur bóndi

ÞÚ ERT HÉR: FORSÍÐA Ungi bóndinn Ungi bóndi mánaðarins Ungi bóndi mánaðarins (Ágúst 2011)

Ungi bóndi mánaðarins (Ágúst 2011)

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Butra002Nafn? Oddný Steina Valsdóttir og Ágúst Jensson

Hvar býr ungi bóndinn? Butru í Fljótshlíð

Hvenær byrjaðir þú búskap? Hófum í raun heyöflun og undirbúning vorið 2004 og tókum formlega við þá um haustið.

Fjölskylda? Eigum þrjú börn þau Val 4 ára, Auði tæplega 2 ára og Jens Eyvind 4 mánaða.

Með hvað býr ungi bóndinn? Búum með sauðfé, 420 hausa sl. vetur og erum einnig með nautaeldi, um 70-80 gripi á fóðrum, á hverjum tíma og ekki má gleyma kettinum og tveimur hundum.

Menntun og fyrri störf? Erum bæði búfræðingar, Ágúst er einnig lærður vélsmiður og Oddný lauk MSc 120 í búvísindum frá LbhÍ.

Áhugamál? Samvera með fjölskyldunni, sauðfjárrækt, útivist og góður kveðskapur.

Hver eru helstu framtíðarplönin varðandi búskapinn? Fjölga fénu að því marki sem jörðin ber og þ.a.l. er fjárhúsbygging inni á planinu.

Hverju þarf að breyta svo íslenskur landbúnaður verði enn öflugri? Hugarfari bænda og annarra á þá leið að landbúnaður verði metinn að verðleikum.

Hvernig er hægt að efla nýliðun í íslenskum landbúnaði? Almenningur og starfandi bændur þurfa að hafa alvöru trú á landbúnaði til framtíðar en þá koma tækifærin og rétta umgjörðin af sjálfu sér.

Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambakjöt

Hvað finnst þér um SUB? Alveg bráðsniðug hugmynd!!

Hvernig verður landbúnaður á Íslandi árið 2030? Kraftmikill, blómlegur og  fjölbreyttur. Sauðfjárrækt verður þá styrkasta stoðin.

Hvaða lag ertu líklegust til að syngja inn á klósetti félagsheimilisins á gleðisamkomu í sveitinni? Bæjarvísurnar ef það væri til að taka undir, einsöngur er ekki inn í myndinni þó lífið lægi við.

Nefndu 3 hluti sem þú myndir taka með þér í göngur/fjallferð? Almennilegan fjallstaf, vasahníf og snæri.

Lífsmottó? Hafa gaman af því sem maður tekur sér fyrir hendur og skila því frá sér af metnaði.

Uppáhalds:
Butra001dýr? Sauðkindin

búgrein? Margar skemmtilegar en sauðfjárræktin stendur upp úr.

árstími? Allar árstíðir hafa sinn sjarma en vorið er líklega uppáhalds þó tilhlökkunin við haustið, smalamennskur og fjárrag sé engu minni.

stjórnmálaflokkur? Hafa allir eitthvað gott fram að færa nema Samfylking, sem er eins máls flokkur.

dagur vikunnar? Allir jafn gagnlegir

matur? Lambakjöt

drykkur? Vatn

dráttarvélategund? MF 135 eru náttúrulega bestu vélarnar en heilt yfir skiptir tegundin engu meðan þær virka.

Ef ykkur stæði til boða að búa í annarri sveit en þið eruð núna búsett í, hvaða sveit yrði fyrir valinu? Skaftártunga fegurst allra sveita

Suðurland eða norðurland og hvers vegna? (spyrja Bjarni og Erla í Viðborðsseli, ungu bændur júlímánaðar) Þetta þarf nú ekki að ræða. Auðvitað suðurland og ráða því mikil landgæði auk veðurfarslegra kosta.

Eitthvað að lokum?

Að vilja er vissasta leiðin

Að vona er starfsorkan hálf

Að efast er hörmungarheiðin

Að hopa er glötunin sjálf.