Nafn? Bjarni Ingvar Bergsson og Erla Rún Guðmundsdóttir
Hvar býr ungi bóndinn? Viðborðsseli á Mýrum í Hornafirði
Hvenær byrjaðir þú búskap? Bjarni búinn að vera í búskapnum í 10 ár en Erla kom inní búskapinn í vor
Fjölskylda? Samanlagt eigum við tvær mömmmur, tvo pabba, tvær systur, einn bróður og eina ömmu
Með hvað býr ungi bóndinn? Kýr, kindur, hross, landnámshænur, hunda og kött, svona staðlað bland í poka
Menntun og fyrri störf? Bjarni:Skóli lífsins. Erla: stúdent frá MA, búfræðingur frá Hvanneyri og er að byrja í þjóðfræðinámi í haust
Áhugamál? Bjarni:Landbúnaður og fjárleitir Erla:Landbúnaðurr,tónlist, ferðalög, bókmenntir o.fl.
Hver eru helstu framtíðarplönin varðandi búskapinn? Undirbúningur að byggja nýtt fjós er hafinn þannig að það er stæðsta verkefnið á næstunni ásamt því að halda áfram að yrkja jörðina og fjölga kúnum
Hverju þarf að breyta svo íslenskur landbúnaður verði enn öflugri? Að afurðarstöðvar fari að borga eðlilegt verð fyrir afurðirnar svo landbúnaður verði atvinna en ekki bara lífsstíll. Upplýsa neytandann um framleiðsluna
Hvernig er hægt að efla nýliðun í íslenskum landbúnaði? Breyta jarðarlögum og breyta styrkjakerfinu
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Kótelettur
Hvað finnst þér um SUB? Þarft framtak, hefur reynst okkur persónulega vel
Hvernig verður landbúnaður á Íslandi árið 2030? Hver einasta jörð setin, gulir akrar og slegin tún
Hvaða lag ertu líklegust til að syngja inn á klósetti félagsheimilisins á gleðisamkomu í sveitinni? Erla:Fram í heiðanna ró. Bjarni:Det var brennivin í flasken.
Nefndu 3 hluti sem þú myndir taka með þér í göngur/fjallferð? Erla:Góða smalahesta, hundinn hennar mömmu og pelann góða. Bjarni: Hund, broddstaf og bönd
Lífsmottó? Erla:Hálfnað verk þá hafið er. Bjarni:Búskapur er heyskapur.
Uppáhalds:
dýr? Bjarni:Hundar Erla:Hestar
búgrein? Bjarni:Loðdýrarækt Erla:ekkert eitt í meira uppáhaldi.
árstími? Bjarni:Bara vor í Hornafirði Erla:Haust
stjórnmálaflokkur? Framsóknarflokkurinn.
dagur vikunnar? Allir dagar eru miðvikudagar í sveitinni.
matur? Bjarni:kótelettur. Erla:jólamaturinn hennar mömmu,léttreiktur lambahryggur.
drykkur? Bjarni:Vatn. Erla:Mojito!
dráttarvélategund? Bjarni:Valtra Erla:Steyr.
Ef ykkur stæði til boða að búa í annarri sveit en þið eruð núna búsett í, hvaða sveit yrði fyrir valinu? Svartárdalurinn, ekki spurning.
Ef þú ættir eina kú og eina kind, hvað myndu þær heita? (spyrja Þórir og Sara, ungu bændur júnímánaðar)? Bjarni: Beljuna og rolluna. Erla:Ljómalind og Heiða.

