Ungur bóndi

ÞÚ ERT HÉR: FORSÍÐA Ungi bóndinn Ungi bóndi mánaðarins Viðtal við bónda - Maí 2011

Viðtal við bónda - Maí 2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

2011sigga002Nafn? Sigríður Drífa Þórólfsdóttir
Hvar býr ungi bóndinn? Tröllatungu, Strandabyggð
Hvenær byrjaðir þú búskap? Ég kom inn í búskapinn í mai 2006
Fjölskylda? Gift Birki Þór Stefánssyni (Gosi), eigum tvö börn, Árný Helgu og Stefán Þór
Með hvað býr ungi bóndinn? Tæplega 400 fjár, 4 hesta og 1 hund
Menntun og fyrri störf? Búfræðingur frá LBHI 2006. Fyrri störf eru margvísleg en mest tengd landbúnaði. Vinn nú í Hólmadrang á Hólmavík með bústörfum
Áhugamál? Landbúnaður, gönguskíði, handverk
Hver eru helstu framtíðarplönin varðandi búskapinn? Fjölga kindunum.
Hverju þarf að breyta svo íslenskur landbúnaður verði enn öflugri? Að fólk sé meðvitað um hvað við höfum góða vöru.
Hvernig er hægt að efla nýliðun í íslenskum landbúnaði? Með fræðslu.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Kjöt og fiskur
Hvað finnst þér um SUB? Gott að geta fylgst með því sem er að gerast.
Hvernig verður landbúnaður á Íslandi árið 2030? Ég held að landbúnaðurinn verði áfram líflegur og kröftugur.
Nefndu 3 hluti sem þú myndir taka með þér í göngur/fjallferð? Góða skó, góð föt og nesti
Lífsmottó? Lifa lífinu lifandi

Uppáhalds:
2011sigga001dýr? Kindurnar
búgrein? Sauðfjárrækt
árstími? Vor og haust
stjórnmálaflokkur? Enginn.
dagur vikunnar? Klukkan 22:00 á föstudagskvöldum
matur? lambakjöt
drykkur? mjólk
dráttarvélategund? Fendt

Ef þér stæði til boða að búa í annarri sveit en þú ert núna búsett í, hvaða sveit yrði fyrir valinu? Reykjarhreppur Suður-Þingeyjarsýslu
Ef þetta er spurning, hvert er þá svarið? (spyr Henný Hrund Jóhannsdóttir, ungi bóndi aprílmánaðar)   jahá