Ungur bóndi

ÞÚ ERT HÉR: FORSÍÐA Ungi bóndinn Ungi bóndi mánaðarins Viðtal við bónda - Apríl 2011

Viðtal við bónda - Apríl 2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

hennyhrund001Nafn? Henný Hrund Jóhannsdóttir
Hvar býr ungi bóndinn?
Breiðabólsstað á Síðu, Skaftárhreppi
Hvenær byrjaðir þú búskap?
Er nú ekki enn byrjuð, en hef verið viðloðandi búskapinn heima  síðan ég var lítil telpa, svo kannski telst ég vera hálfbóndi?
Fjölskylda?
Faðir minn heitinn, Jóhann Þorleifsson, fyrrum bóndi á Breiðabólsstað. Móðir mín heitir Sigurjóna Matthíasdóttir, bóndi á Breiðabólsstað og gjaldkeri í Arion banka á Klaustri. Svo á ég þrjú eldri systkini, Ernu Margréti, Söndru Brá og Þormar Ellert, verðandi búfræðingur.
Með hvað býr ungi bóndinn?
Við eigum rúmar 100 kindur.
Menntun og fyrri störf?
Ég er stúdent frá FSu og er á fyrsta ári í búfræði núna hjá LbHÍ.
Áhugamál?
Kindur, almennur búskapur og skemmtanir í góðra vina hópi.
Hver eru helstu framtíðarplönin varðandi búskapinn?
Byggja ný fjárhús t.d., fjölga fénu og kannski fá mér nokkrar beljur, svo væri ekki vitlaust að rækta upp eitthvað af landinu heima.
Hverju þarf að breyta svo íslenskur landbúnaður verði enn öflugri?
Það þyrfti að bæta umfjöllun um landbúnað í grunnskólum og framhaldsskólum, t.d. bjóða upp á einhverja grunnáfanga búfræðinnar í framhaldsskólum. Auðvitað væri síðan kjörið að kynna betur möguleikana í íslenskum landbúnaði og hafa þá aðgengilegri, t.a.m. heimavinnslu afurða og ýmislegt svoleiðis nokk.
Hvernig er hægt að efla nýliðun í íslenskum landbúnaði?
Með því að kynna landbúnað betur fyrir unga fólkinu í landinu og efla kynningar á nýliðun, þ.e. skýra út hvernig hún fer fram og bjóða upp á aðstoð fyrir unga bændur sem eru að taka við búum eða kaupa bú. Svo væri auðvitað mjög nauðsynlegt að láta yngri kynslóðina lesa Sjálfstætt fólk, eftir Halldór Laxness, með opnum hug. En eins og þar segir: „Líf íslenska bóndans, er hið eina sanna líf!“.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu?
Ég myndi segja að það væri heimagert slátur, ala mamma auðvitað.
Hvað finnst þér um SUB?
Snilldar samtök sem hjálpa ungum bændum að tjá sig opinberlega um mál sem varða alla bændur.
Hvernig verður landbúnaður á Íslandi árið 2030?
Svo lengi sem Ísland verður ekki innan ESB þá verður landbúnaður held ég mjög blómlegur, en sennilega mikið vélvæddur, því er nú verr og miður.
Hvaða lag ertu líklegust til að syngja inn á klósetti félagsheimilisins á gleðisamkomu í sveitinni?
Ég syng nú ekki mikið inni á klósettum, en á gangi samkomuhússins myndi Rósin sennilega hafa vinninginn.
Nefndu 3 hluti sem þú myndir taka með þér í göngur/fjallferð?
Nesti, auka gúmmískó og íslenskt neftóbak.
Lífsmottó?
Sama og mottóið hans góðvinar míns Steins Steinars:

Að sigra heiminn er eins og að spila á spil,
með spekingslegum svip og taka í nefið.
Og þó þú tapir, það gerir ekkert til.
Því það var nefnilega vitlaust gefið.

hennyhrund002Uppáhalds:
dýr?
Íslenska sauðkindin
búgrein?
Sauðfjárrækt.
árstími?
Vorið.
stjórnmálaflokkur?
Framsókn.
dagur vikunnar?
Ætli það sé ekki föstudagur.
matur?
Sennilega slátur.
drykkur?
Líkast til kók í bauk.
dráttarvélategund?
Massey Ferguson.

Ef þér stæði til boða að búa í annarri sveit en þú ert núna búsett í, hvaða sveit yrði fyrir valinu? Þótt maður vilji nú aldrei yfirgefa heimahagana, þá hugsa ég að ég myndi velja Langadalinn í A-Hún, þar sem karlinn minn er þaðan.
Eitthvað að lokum? Það er allt í góðu lagi, því í sveitinni heima hjálpast allir að, babbaa-babba.