Hákon B. Harðarson skrifar:
Mikil svell hafa verið á túnum við utanverðan Eyjafjörð síðan fyrir áramót og eru bændur þar farnir að hafa verulegar áhyggjur að miklar skemmdir verði á túnum sökum kals.
Ástandið er einna verst á Árskógströnd og inn í Skíðadal og eru dæmi um að ekki sjáist í grænan blett á túnum á þessum svæðum. Einnig eru bændur í utanverðri Hörgárbyggð (Arnarneshrepp) farnir að búast við stórfeldu tjóni sökum kals ef ekki fer að hlána næstu daga. Má því búast við að bændur á þessum svæðum þurfi að leggja í umtalsverðan kostnað við að endurrækta tún sín á komandi vori.
Hákon Bjarki Harðarson
Sauðfjárbóndi og Töskutuddi

