Ungur bóndi

ÞÚ ERT HÉR: FORSÍÐA Ungi bóndinn Pistlar Það eru líka til ungir kúabændur

Það eru líka til ungir kúabændur

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Á ferðum mínum um sveitir Eyjafjarðar með sæðingartösku í hendi heyrir maður oft ýmislegt og fær oft ýmsar spurningar.

Síðustu daga hef ég verið spurður æði oft að því hvort ég ætli á Fundinn! Eru þetta oftast ungir bændur sem bera upp þessa spurningu og eiga þá við aðalfund ungra bænda á norðurlandi sem er núna næstkomandi laugardag  26. feb.

Þegar ég svo hyggst svara þessari spurningu þá kemst ég varla að því spyrjandinn segir nánast undantekningarlaust frekar pirraður „ég kemst ekki ég þarf að fara í  fjós“. Yfirleitt svaraði ég í hálfkæringi og sagði mönnum bara að fá sér róbót og þar með var umræðan úr sögunni og ég búinn að sæða kýrnar og tími til að halda á næsta bæ.

Þegar þetta var búið að ganga svona á nokkrum bæjum fór ég að velta fyrir mér hvað væri í gangi, hvort bændur væru allt í einu orðnir svona harðir á að fara í fjós klukkan fimm og ekki mætti skeika mínútu til eða frá. Eða hvort ég væri eitthvað að rugla með tímasetningu á fundinum.  Þegar ég svo fór að athuga málið skildi ég hvað þessir ungu bændur voru að meina þar sem fundurinn byrjar kl. 16:00 sem er afar óhentugur tími fyrir kúabónda nema auðvita hann sé með róbót.

Ég vil því skora á þá sem hafa með tímasetningu fundarins að gera að hafa hann næst á tíma sem hentar betur kúabændum því það eru líka til ungir kúabændur.

 Hákon B. Harðarson, töskutuddi og sauðfjárbóndi

 
Deila á Fésbók