Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar:
Á undaförnum dögum hefur talsverð umræða verið í fjölmiðlum um velferð dýra í íslenskum landbúnaði. Í þeirri umræðu hafa fjölmiðlar stundum kallað Árna Stefán Árnason, lögfræðing með sérþekkingu á dýraverndarlögum, til viðtals sem og vitnað í meistaraprófsritgerð hans.
Ritgerðin ber heitið „Hin leynda þjáning búfjár á Íslandi“ og er aðgengileg á veraldarvefnum.
Ástæða þessara skrifa er sú að undirrituðum finnst ýmislegt í þessari ritgerð, merktri Háskólanum í Reykjavík, skólanum ekki til sóma. Reyndar skal það tekið fram að útgáfan á netinu er endurútgáfa af þeirri sem skilað var til prófs og hlaut fyrstu einkunn. Þá ritgerð hef ég ekki séð, en verð að ætla að efnislega séu þær líkar.
Einkum eru það tvær setningar sem ég geri athugasemdir við í umræddri ritgerð. Þær eru: „Orðrómur hefur verið á kreiki á Íslandi að ýmislegt mætti betur fara í þeim efnum, sem tengjast dýravernd í framleiðslu minkaskinna“ og: „Þannig er það á almannarómi að [X] sækir reglulega fé til slátrunar, vinnslu og markaðssetningar frá býlinu [X] og stuðlar þannig að áframhaldandi búskap á býli, sem margsinnis hefur fengið athugasemdir fyrir slæma meðferð á dýrum.
Nú þekki ég ekki hvaða vinnubrögðum lögfræðin beitir í lögfræðilegum rannsóknum. Að byggja röksemdafærslu á „orðrómi“ eða „almannarómi“ finnast mér óvönduð vinnubrögð og trúi varla að slíkt sé kennt við Háskólann í Reykjavík. Í mínu raunvísindanámi hef ég vanist því að gerð sé vísindaleg athugun á þeirri tilgátu sem til rannsóknar er hverju sinni. Annaðhvort stenst tilgátan eða hún stenst ekki, slík aðferðafræði flokkast undir vönduð vinnubrögð.
Einnig má benda á ýmsa aðra hluti í þessari ritgerð, s.s. orðanotkun á stöku stað sem hefði mátt komast hjá með því að leita til fagaðila á sviði landbúnaðar til yfirlestrar, látum það liggja milli hluta. Öllu alvarlegri finnast mér framangreindar röksemdafærslur og sé staðreyndin sú að slík vinnubrögð séu almennt kennd við Háskólann í Reykjavík, finnst mér það miður.
Greinin birtist í Morgunblaðinu 5. maí 2011.
Eyjólfur Ingvi Bjarnason, í framhaldsnámi við UMB, Ási, Noregi.

