Starfsreglur stjórnar Samtaka ungra bænda
1. gr.
Formaður boðar til stjórnarfunda SUB og skal tilkynning þess efnis vera send út ekki seinna en fimm virkum dögum fyrir fyrirhugaðan fund. Í tilkynningu þessari skal koma fram efni fundarins, dagsetning, tími og staðsetning. Heimilt er að taka mál til umfjöllunar undir önnur mál þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver stjórnarmanna óskar þess.
2. gr.
Stjórn SUB skal koma sér saman um fastann fundartíma mánaðarlega; einn aðalfundartíma og annan til vara. Skal þetta ákveðið á fyrsta fundi stjórnar á hverju ári, þ.e. í janúar
3. gr.
Formaður stýrir fundum og ritari skráir fundargerð. Stjórnarmaður sem er ekki sammála ákvörðun stjórnar, á rétt á því að fá sérálit sitt bókað. Fundarritari skal senda stjórnarmeðlimum fundargerð síðasta fundar, eins fljótt og kostur er, eigi síðar en þremur dögum eftir fundinn. Ef enginn andmælir henni innan tveggja daga þá skal gera hana opinbera fyrir félagsmönnum á heimasíðu félagsins.
4. gr.
Stjórnarmanni ber að víkja af fundi við meðferð og afgreiðslu máls sem varða hann sjálfan, skyldmenni eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að vilji eða afstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Honum er þó heimilt að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni áður en hann víkur af fundi. Stjórnarmanni sem telur hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli stjórnarinnar á því.
5. gr.
Þau mál sem afgreiða þarf með atkvæðagreiðslu í stjórn er einungis atkvæðabær þegar meirihluti stjórnarmeðlima eru á fund og ræður þá hreinn meirihluti úrslitum. Falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns, sbr. 6. gr. samþykkta SUB.
6. gr.
Löglega boðaður fundur telst vera fundur sem boðaður er samanber fyrstu grein laganna og helmingur stjórnarmeðlima mættur.
7. gr.
Um ályktanir, fréttatilkynningar og sambærilegt efni sem birt er opinberlega í nafni stjórnar SUB:
a) Fréttatilkynningar, auglýsingar og annað sambærilegt efni er birt á ábyrgð formanns og/eða meirihluta stjórnarmanna enda hafi efnið verið kynnt stjórnarmönnum og leitað samþykkis meirihluta stjórnar.
b) Ályktanir sem setja þarf fram og birta milli stjórnarfunda skal fjalla um á stuttum símafundi, með tölvupóstsamskiptum eða öðrum sambærilegum hætti og þurfa þær að hljóta samþykki meirihluta stjórnar fyrir birtingu. Þær skulu síðan færðar til bókar á næsta stjórnarfundi
8. gr.
Gjaldkeri skal gera grein fyrir fjárhagsstöðu félagsins ársfjórðungslega á stjórnarfundum sem haldnir eru í mars, júní, september og desember
9. gr.
Breytingar, viðbætur eða úrfellingar á starfsreglum þessum skulu samþykktar á löglega boðuðum stjórnarfundi SUB með öllum greiddum atkvæðum.
10. gr.
Þessar starfsreglur öðlast þegar gildi. Þær skal endurskoða þegar þörf er á en eigi síðar en eftir eitt ár frá gildistöku þeirra.
Þannig samþykkt af stjórn Samtaka ungra bænda 5. janúar 2011.

