6. fundur stjórnar Samtaka ungra bænda starfsárið 2011-2012 var símafundur, mánudaginn 8. ágúst klukkan 20:30.
Á línunni:
Gunnbjörn Rúnar Ketilsson
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
Helgi Haukur Hauksson
Þórir Níelsson
Formaður setur fund, á dagskrá er afgreiðsla tveggja mála sem stjórnin hefur aðeins unnið sín á milli undanfarnar vikur.
1. Ályktun til rektors Háskóla Íslands
Samtök ungra bænda skora á rektor Háskóla Ísland að beita sér fyrir faglegum vinnubrögðum og málefnalegum málflutningi starfsfólks háskólans í almennri fjölmiðlaumræðu hér á landi.
Á undanförnum misserum hefur Þórólfur Mattíasson deildarforseti hagfræðideildar HÍ farið mikinn í fjölmiðlum í tengslum um sauðfjárrækt sem atvinnugrein í heild sinni. Í skrifum og orðræðu deildarforsetans hefur hann farið rangt með staðreyndir og verður þekking hans á málefninu að teljast fullkomlega yfirborðskennd. Lýsa Samtök ungra bænda jafnframt undrun sinni á því að hagfræðiprófessorinn skuli ekki hafa aflað sér betri upplýsing um fyrirkomulag sauðfjárframleiðslu á Íslandi áður en hann tók að fjalla um atvinnugreinina á vettvangi fjölmiðla.
Háskóli Íslands er virt mennta og fræðastofnun sem nýtur trausts í samfélaginu og ber mikla samfélagslega ábyrgð sem slík. Því er eðlileg krafa hins almenna skattgreiðanda að þeir sem gegna ábyrgðarstöðum við stofnunina láti fagmennsku ávalt vera í fyrirrúmi í umfjöllun sinni um málefni á opinberum vettvangi og setji hvorki fram tilhæfulausar staðhæfingar né heldur blandi pólitískum skoðunum sínum á óskyldum málefnum inn í umræðuna.
Allir fundarmenn sammála ályktuninni.
2. Erindi til útsendingar á nokkur aðildarfélög SVÞ vegna ummæla um innflutning á kjöti (Sjá frétt á RÚV http://www.ruv.is/frett/lata-reyna-a-log-med-innflutningi)
Samtök ungra bænda harma afstöðu þinna hagsmunasamtaka þ.e. Samtaka verslunar og þjónustu gangvart innlendri búvöruframleiðslu og hagsmunum bænda.
Undanfarnar vikur hafa Samtök verslunar og þjónustu farið mikinn í almennri umræðu varðandi innflutning á kjöti til Íslands. Greint hefur verið frá því að Samtök verslunar og þjónustu undirbúi nú innflutning á kjötvörum sem munu koma í beina samkeppni við innlenda framleiðslu bænda.
Innlend búvara hefur allt frá hruni haldið aftur af vísitölu neysluverðs og verði mikilvægur hlekkur í því að halda niðri verði á matarkörfu heimilanna. Ekki er nokkur vafi á að með þeirri samfélagslegu ábyrgð sem bændur hafa sýnt með því að koma ekki öllum þeim hækkunum sem þeir hafa þurft út í almennt verðlag hafa þeir tekið á sig birgðar sem fyrir vikið hafa ekki lent á neytendum.
Því þykir Samtökum ungra bænda miður að hagsmunasamtök þín vilji í heild sinni hefja innflutning á kjötvörum til Íslands og stuðla þannig að samdrætti í innlendri framleiðslu og veikara atvinnulíf innanlands. Með því að flytja inn vörur sem nú þegar eru framleiddar á Íslandi er tekin óábyrg afstaða til samfélagsins og vegið að innlendri atvinnustarfsemi.
Því spyrja Samtök ungra bænda fyrirtæki þitt hvort þessi fyrirhugaði innflutningur sé gerður í umboði þíns fyrirtækis?
Allir fundarmenn sammála ályktuninni, verður send á 20 fyrirtæki sem aðild eiga að SVÞ.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl 20:50.
/GEH

