Ungur bóndi

ÞÚ ERT HÉR: FORSÍÐA Um félagið Fundargerðir Aðrar fundargerðir Formannafundur starfsárið 2011-2012

Formannafundur starfsárið 2011-2012

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Á fundinn mættu stjórn SUB

Eyjólfur Ingvi Bjarnason

Gunnbjörn Rúnar Ketilsson

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir

Helgi Haukur Hauksson

Þórir Níelsson

ásamt

Indíana Ósk Magnúsdóttir, fjáröflunarteymi

Halldór Örn Árnason, formaður FUBA

Guðný Harðardóttir, FUBA

Elín Eyjólfsdóttir, FUBVV

Hermann Ingi Gunnarsson, FUBN

Eyþór Dalmann Sigurðsson, FUBN

Engin mætti frá FUBS

Helgi Haukur formaður samtakanna setur fund:

Fyrir liggur dagskrá fundarins

  1. Menntamál
  2. Ráðgjafaþjónusta í landbúnaði
  3. Nýliðunarmál í landbúnaði
  4. Heimasíða samtakana
  5. Utanlandsferð SUB
  6. Ungi bóndi ársins 2011

1.  Menntamál

Rætt er um hvernig ungir bændur vilja sjá landbúnaðarmenntun þróast. Flestallir fundarmenn hafa stundað nám við Landbúnaðarháskólan í búfræði og/eða búvísindum.  Nefnt er að praktíska reynslu skorti í búvísindanámi og þar með verði til ráðnunautar sem ekki næga reynslu af búskap og bústörfum.  Leggja þyrfti meira upp ú r verknámi og verkreynslu.  BS nám í búvísindum er grunnnám og gert er ráð fyrir að menn sæki sér framhaldsmenntun þar á eftir en talsvert hefur skort á að ferlið sé klárað við Landbúnaðarháskólan og því hætti margir eftir BS nám

Eðlilegt er að gera kröfu á yfirvöld að skilgreint sé hverju og hverjum námið á að þjóna.  Einnig rætt um búfræðinám og þá reynslu sem menn hafa af því við skólan.  Almennt eru menn sammála um að námið sé að mörgu leiti gott en kennslugögn þó oft úrelt.  Þeir sem hafa farið út í búskap eftir búfræðinám telja helst að skort hafi á áherslu á hagrænar greinar og að bæta þurfi verklega kennslu.

Að lokum er rætt um þá nauðsyn að efla umræðu um gildi menntunar í landbúnaði.  Efla þarf vitund í samfélaginu um nauðsyn þess að afla sér menntunar ætli menn að starfa í landbúnað og það sé í dag sjálfsagt að vera háskólamenntaður bóndi

2. Ráðgjafaþjónusta í landbúnaði

Formaður opnar umræðuna á þeirri spurningu hvort rétt sé að leggja niður ráðgjafaþjónustu á Íslandi og kaupa þessa þjónustu erlendis frá.  Fundarmenn telja öfluga innlenda ráðgjafaþjónustu mikilvæga en í dag sé helsti galli á ráðgjafaþjónustu hérlendis að samræmingu skorti og bænur fái ekki sömu þjónustu alls staðar á landinu

Eftirfylgni við ráðgjöf mætti að vera meiri og mönnum hugnast t.d hugmyndir um fastar árlegar heimsóknir ráðunauta.

Rætt er um hvort eðlilegt sé að snúið sé frá núverandi kerfi um margskipta ráðgjafaþjónustu yfir í eina yfirstjórn ráðgjafaþjónustu á Íslandi ályktar fundurinn að slíkt væri tvímælalaust til bóta.

3. Nýliðunarmál í landbúnað

Almennt er lítið vitaði um stöðu nýliðunarmála í landbúnaði hérlendis þar sem engin úttekt hefur verið gerð á þeim málum.  Formaður greinir frá því að fulltrúar stjórnar hafi átt samræðu við formann Bændasamtakana þar sem rætt var um samvinnu SUB og BÍ um verkefni þar sem markmiðið væri að kortleggja nýliðun í íslenskum landbúnaði.  Skoða þyrfti samfélagsmynstur, skiptingu milli landshluta og hvaða samfélagsþættir hafa áhrif á það hvernig mönnum gengur að hefja búskap

Stefnt er að því að hitta fulltrúa Bændasamtakana aftur og ræða þetta mál áfram.

4.  Heimasíða samtakana

Efla þarf heimasíðu samtakana.  Gott væri að finna fréttastjóra í hverjum landsfjórðungi sem sæi um fréttaöflun fyrir síðuna.  Myndi það efla fréttaflutning til mina.  Einnig þarf að koma greinaskrifum af stað og finna fulltrúa til þessa að sjá um slíkt.

Rætt er um að landhlutar finni sér fréttafulltrúa sem fyrst og komi í samband við vefstjóra.

5. Utanlandsferð SUB

Rætt er um utanlandsferð á vegum samtakana en fyrir liggu ályktun frá aðalfundi um að samtökin myndu sjá um skipulagningu á slíkri ferð.  Rætt er um hvert eigi að fara og hvað það megi kosta einnig hvenær heppilegast sé að fara í þessa ferð.  Margir nefna mið, austur eða suður Evrópu og gaman væri að skoða bæði hefðbundin landbúnað og hefðir á hverju svæði sem og stærri og tæknivæddar búskap.  Fundarmenn telja að of stuttur fyrirvari sé á ferð strax í haust en jafnvel megi stefna á vor 2012.

Ákveðið er að fá skipulegjendur svona ferða til að setja fram tilboð um það hvað er í boði og skoða sem flesta möguleika.

6. Ungi bóndi ársins 2011

Formaður greinir frá áætlunum um keppnina Ungi bóndi ársins sem haldin verður að þessu sinni í samstarfi við Sauðamessu í Borgarnesi sem haldin er ár hvert í október.  Farið hefur verið á leit við Sigtrygg Veigar Herbertsson um að hann taki að sér að hanna keppnina.

Fleira ekki rætt og fundi slitið

/GEH

 
Deila á Fésbók