Fundur stjórnar SUB með formönnum og fulltrúm landshlutafélag þann 11. júní 2010.
Mættir:
Helgi Haukur Hauksson, formaður SUB
Oddný Steina Valsdóttir, varaformaður SUB
Gunnbjörn Rúnar Ketilsson, stjórnarmaður SUB
Margrét Ósk Ingjaldsdóttir, gjaldkeri SUB
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, ritari SUB
Stefán Geirsson, formaður FUBS
Bjarni Ingvar Bergsson, stjórnarmaður FUBS
Þórarinn Andrésson, FUBA
Halldór Örn Árnason, stjórnarmaður FUBA
Bernharð Arnarsson, formaður FUBN
Erla Rún Guðmundsdóttir, stjórnarmaður FUBN
Benedikt Steinar Benónýsson, stjórnarmaður FUBVV
Gunnar Guðbjartsson, formaður FUBVV
Eyjólfur Ingvi Bjarnason, vefstjóri heimasíðu SUB
Formaður biður fulltrúa landshlutafélaga að gera grein fyrir hver staða er á starfsemi viðkomandi landshlutafélaga.
FSUB hefur haldið eina ungbændakeppni í samvinnu við Jötunvélar. FUBA hefur hittst reglulega og er með grillveislu á næstunni. Auk þess hafa þeir sett sig í samband við sveitahátíðir á Austurlandi.
FUBN er ekki farið af stað með formlega starfsemi en stefnir á að gera eitthvað svipað og suðurlands og austurlandsdeildir. Það sama er að segja um FUBVV.
Helgi Haukur fer yfir áætlanir um keppni um “Unga bónda ársins” og er rætt um að gaman væri ef landshlutafélög gætu haldið litlar keppnir líkt og sunnlendingar gerðu í vor, t.d. væri hægt að hafa samband við Skagfirðinga vegna “landsmótshelgar”. Mikilvægt er að gera aðalkeppnina vel úr garði og áhorfendavæna þannig að viðburðurinn verði góð auglýsing fyrir félagsskapinn. Þrátt fyrir að ekki sé alveg endanlega ljóst hvort hægt verði að halda keppnina í samstarfi við Töðugjöld á Hellu í lok sumars er samt sem áður mikilvægt að hefja undirbúning strax.
Farið er stuttlega yfir hvaða hugmyndir menn hafa um starf landshlutafélaga og samstarf þeirra við aðalfélagið. Eru menn nokkuð sammála um að hlutverk landshlutafélaga sé að halda utan um almenna starfsemi og viðburði heima í héraði meðan stjórn aðalsamtaka væri hið formlega andlit félagsskaparins útá við.
Nefnt er að mikilvægt sé að ganga frá tekjustofni fyrir landshlutafélögin sem og aðildarfélagið því það sér grundvöllur að því að hægt sé að fara af stað með einhverskonar starfsemi. Ganga þarf frá félagatali og innheimtu félagsgjalda sem fyrst.
Eyjólfur Ingvi Bjarnason tekur því næst til máls og segir stuttlega frá fundi sínum með formanni norskra ungbænda þar sem hann kynnti sér starf systursamtaka SUB í Noregi. Einnig segir hann frá kynnum sínum af sambærilegu starfi í Nýja Sjálandi þar sem félagsmenn tók t.d. að sér vinnu í fjáröflunarskyni fyrir félagið. Vera má að hægt sé að afla einhverra tekna hér með sambærilegum hætti. Í framhaldi er rætt um mikilvægi þess að kynna sér starfsemi erlendra systurfélaga.
Fyrirspurnir koma farm varðandi hugsanlegt samstarf við önnur félög eða aðila sem tengjast landbúnaði. Dæmi er tekið um hugsanlegt samstarf FUBVV við nemendafélag LbhÍ um viðburði. Frá aðalfundi liggur fyrir ályktun um að leita samstarfs við U.M.F.Í. t.d. með leiðtoganámskeið eða annað sem eflt gæti félagsvitund ungs fólks innan félagsskaparins. Almennt telst samstarf við einstaka aðila vegna viðburða vera á ábyrgð landshlutafélaga þó í einhverjum tilfellum geti verið eðlilegra að aðalstjórn SUB leiti eftir formlegu samstarfi um verkefni.
Rædd er nauðsyn þess að ná inn nýjum félögum og gera félagsskapinn aðlaðandi. Lykillinn að því er öflugt starf og uppákomur. Menn eru sammála um að eitt mikilvægasta hlutverk félagassins sé að efla samstöðu og félagsvitund ungs fólks í landbúnaði sem síðan muni skila sér upp í félagskerfi landbúnaðarins þegar fram líða stundir. Hugmynd kemur fram um að fara í fundaferðir í haust til að kynna félagasskapinn.
Í framhaldi af þessu spinnst umræða um kynningu á félagsskapnum t.d. í framhaldsskólum. Einnig kemur upp hugmynd um að gott væri að vera með einhverskonar kynningarefni t.d. í Húsdýragarðinum. Benedikt Steinar varpar fram hugmynd um gerð dagatals með myndum af ungum bændum við störf. Jafnvel væri hægt að búa til ljósmyndasamkeppni í tengslum við það. Margrét og Gunnfríður taka að sér að þróa þá hugmynd og koma af stað.
Tekin er til umræðu hugmynd Stefáns Geirssonar um stofnun “landshlutafélgas” á höfuðborgarsvæðinu. Slíkt gæti verið mikilvægur þáttur í því að efla stöðu félagsskaparins. Gott getur verið að eiga traust bakland á Suðvesturhorninu. Rætt er um að hafa samband við Ingveldi Geirsdóttur til að koma þessari hugmynd í farveg.
Á fundinn kom einnig Brynja Björg Halldórsdóttir formaður Ísafoldar sem er félagsskapur ungs fólks gegn Evrópusambandsaðild. Brynja fer stuttlega yfir starfsemi Ísafoldar. Mögulegt samstarf milli félagana er rætt en ekki er talin ástæða til að því sé komið á með formlegum hætt þar sem sameiginlegir hagsmunir liggi aðeins í einu af fjölmörgum málum sem SUB vinnur að. Félögin séu þó vel meðvituð um hvort annað í umræðunni um mögulega aðild að ESB. Í framhaldi af heimsókn Brynju spinnst umræða um hvort ekki sé rétt, í ljósi ályktana aðalfundar um málefnalega umræðu um aðildarumsókn Íslendinga að ESB, að bjóða fulltrúm Evrópusamtakana til samskonar fundar til umræðna.
Fleira ekki rætt og fundi slitið 17:00

