Ungur bóndi

ÞÚ ERT HÉR: FORSÍÐA Nýjustu fréttir NOR98: nauðsynlegur niðurskurður?

NOR98: nauðsynlegur niðurskurður?

Jón H. Eiríksson skrifar:

Í fréttatilkynningu á heimasíðu Matvælastofnunar frá 1. febrúar síðastliðnum var tilkynnt að Nor98 hefði greinst í kind frá bænum Merki á Jökuldal og að ,,undirbúningur nauðsynlegs niðurskurðar" væri að hefjast eins og það er orðað þar. Mér finnst þetta í hæsta máta undarleg afstaða hjá Matvælastofnun.

Nor98 er sjúkdómur skyldur riðu en greinir sig þó frá henni í einu veigamiklu atriði: Nor98 virðist ekki smitast á milli einstaklinga við náttúrulegar aðstæður. Sjúkdómurinn hefur sjaldan komið upp í fleiri en einni kind á sama bæ og dreifing hans um heiminn virðist vera því sem næst tilviljunarkennd. Hvernig Nor98 verður til er ekki vitað en líklegasta skýringin er einhverskonar tilviljunarkennd breyting.

Tilfelli þar sem Nor98 hefur greinst hér á landi hafa verið langt hvert frá öðru, bæði á riðusvæðum og utan þeirra. Hingað til hefur öllu fé frá bæjum þar sem Nor98 greinist verið slátrað, en aðeins í einu tilfelli hefur við það fundist annað tilfelli Nor98, og hefðbundin riða hefur aldrei verið staðfest við þann niðurskurð.

Það er ekki hægt að segja að Nor98 hafi valdið bændum á Íslandi miklu beinu tjóni. Aðeins tvisvar hafa sjúkdómeinkenni á lifandi skepnum verið tengd við sjúkdóminn hér á landi. Einnig dregur það úr mögulegu tjóni að það eru helst eldri ær sem fá sjúkdóminn. Nor98 er því ekki vandamál sem kallar á róttækar öryggisaðgerðir þó ekki hafi tekist að afsanna að sjúkdómurinn geti hugsanlega mögulega smitast við einhverjar aðstæður.

Niðurskurður bústofns á heilum bæ er meira en að segja það. Það er nokkurra milljóna kostnaður fyrir ríkissjóð, en hann ku ekki vera svo digur þessa dagana. Aðgerðin felur ekki bara í sér að lóga öllu sauðfé, bændur þurfa að láta af sauðfjárbúskap í tvö ár, hreinsa öll hús og umhverfi þeirra. Og einnig það sem ekki síður tekur virkilega á: standa í eilífu stappi við yfirvöld um svo til allt sem viðkemur hreinsun og bótum. A.m.k. er reynslan sú þar sem ég þekki til. Einnig er áfallið fyrir þá sem þurfa að láta drepa allar sínar kindur gríðarlegt. Það þekki ég af eigin reynslu.

Niðurskurður vegna Nor98 er að mínu mati algerlega tilgangslaus, að minnsta kosti langt frá því að vera nauðsynlegur. Ég hvet Matvælastofnun að endurskoða afstöðu sína til Nor98 og hætta að láta skera heilbrigðar kindur – að því er virðist – af því bara.

Jón H. Eiríksson, Búvísindanemi, Gýgjarhólskoti

 

 


Ýmsar staðreyndir um NOR98

Samkvæmt upplýsingum sem aðgengilegar eru á alnetinu er þetta það helsta sem vitað er um Nor98:

- Nor98 (atypical scrapie) greindist fyrst í Noregi árið 1998.

- Nor98 er sjúkdómur, skyldur hefðbundinni riðu, en kemur upp alveg óháð henni.

- Sennilega hefur Nor98 lengi verið til, hann fór bara ekki að greinast fyrr en með nútíma greiningaraðferðum.

- Yfirleitt greinist Nor98 í eldri ám.

- Aðeins fá dæmi eru um að kindur veikist af Nor98, flest tilfelli greinast bara í heilasýnum.

- Nor98 kemur víðast hvar upp sem stök tilfelli, oftast aðeins eitt í hverri hjörð, sem er mjög ólíkt dreifingu smitsjúkdóma.

- Veikin hefur greinst nær alstaðar þar sem hennar er leitað, t.d. á Nýja-Sjálandi þar sem hefðbundin riða er ekki til staðar.

- Þótt tekist hafi að flytja Nor98 á milli kinda með tilraunum hefur ekki tekist að sýna fram á að Nor 98 smitist á milli kinda við náttúrulegar aðstæður.

- Nor98 kemur frekar upp í kindum með arfgerðir sem fá sjaldan hefðbundna riðu.

- Enn er óljóst hvernig Nor98 verður til, en líklegasta skýringin er einhverskonar tilviljunarkennd breyting.

Helstu heimildir:

Andréoletti O, Orge L, Benestad SL, Beringue V, Litaise C, o.fl., 2011. Atypical/Nor98 Scrapie Infectivity in Sheep Peripheral Tissues. PLoS Pathog 7:2. http://www.plospathogens.org/article/info%3Adoi%2F10.1371%2Fjournal.ppat.1001285

Benestad, Arsac, Goldmann og Nöremark, 2008. Atypical/Nor98 scrapie: properties of the agent, genetics,and epidemiology. Veterinary Research - A Journal on Animal Infection 39:19. http://www.vetres-archive.org/file/Vet.Res._0928-4249_2008_39_4_ART0006.pdf

Biosecurity New Zealand. Nor 98/atypical scrapie. http://www.biosecurity.govt.nz/pests/atypicalscrapie

Fediaevsky, Gasqui, Calavas og Ducrot, 2010. Discrepant epidemiological patterns between classical and atypical scrapie in sheep flocks under French TSE control measures. Í The Veterinary Journal 133: 3, bls 338-340. http://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S1090023309002585

Fediaevsky o.fl. A descriptive study of the prevalence of atypical and classical scrapie in sheep in 20 European countries. BMC Veterinary Research 2008, 4:19. http://www.biomedcentral.com/1746-6148/4/19

Matvælastofnun. Riðutilfelli á Merki í Jökuldal.

Simmons o.fl. 2009. Atypical scrapie in sheep from a UK research flock which is free from classical scrapie. BMC Veterinary Research, 5:8. http://www.biomedcentral.com/1746-6148/5/8

Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Rannsókn á Nor98 riðu á Íslandi. Starfslið: Jóna Aðalheiður Aðólfsdóttir, Marianne Jensdóttir og Stefanía Þorgeirsdóttir. Samstarf: Matvælastofnun http://www.keldur.is/rannsokn_nor98_ridu_islandi


 

 

 
Deila á Fésbók

Myndagallerí

images/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/02_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/1_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/10_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/11_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/12_100_67.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/13_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/14_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/15_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/16_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/17_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/18_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/2_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/24_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/3_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/4_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/5_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/6_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/7_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/8_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/86_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/9_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/sy-ra_skr-ugil__hestbaki_100_75.jpg