Ungur bóndi

ÞÚ ERT HÉR: FORSÍÐA Deildir Vestur Fréttir og pistlar

Fréttir og tilkynningar

Félagsmálanámskeið á Hvanneyri

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa
DSC04569Félag ungra bænda á Vesturlandi og Vestfjörðum stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Hvanneyri í gær. Sigurður Guðmundsson hjá Ungmennafélagi Íslands sá um námskeiðið og fór yfir ýmsa hagnýta þætti er tengjast ræðumennsku, svo sem að taka til máls, framkomu, ræðuflutning, raddbeitingu, skipulag ræðu og fleira. Einnig var á námskeiðinu farið yfir fundarsköp, hvernig skal boða til funda, dagskrá funda, fundareglur, fundaskipan, umræður, meðferð tillagna og kosningar.
Nánar...
 

Félagsmálanámsskeið

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa
Félag ungra bænda á Vesturlandi og Vestfjörðum stendur fyrir félagsmálanámskeiði mánudaginn 28. mars nk. kl. 16.00 í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Námskeiðið er haldið af Sigurði Guðmundssyni og er hluti af félagsmálaátaki sem Bændasamtök Íslands, Kvenfélagasamband Íslands og Ungmennafélag Íslands standa fyrir.
Nánar...
 

Aðalfundur FUBVV 2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa
IMG_3058Aðalfundur félags ungra bænda á Vesturlandi og Vestfjörðum verður haldinn á Kollubar á Hvanneyri þann 16. febrúar næstkomandi kl: 20:30.  Allir félagar FUBVV eru hvattir til að mæta og hafa áhrif á starf og stefnu félagsins, eins eru nýjir félagar velkomnir. En allt ungt fólk á aldrinum 18 til 35 ára getur orðið aðilar að samtökunum, ekki er skilyrði að vera starfandi bóndi, einungis að hafa áhuga á málefnum landbúnaðar og landsbyggðarinnar.
Nánar...
 
Síða 1 af 2
Deila á Fésbók