Í lok febrúar 2010 var stofnfundur félags ungra bænda á Suðurlandi haldinn í Árhúsum, Hellu en félagssvæði þess er frá Hellisheiði í vestri að Eystrahorni í austri.
Á stofnfundinum var Stefán Geirsson kosinn formaður og með honum í stjórn Ragnhildur Sveinbjarnardóttir og Bjarni Ingvar Bergsson. Ragnhildur gekk úr stjórn árið 2012 og í hennar stað kom í stjórnina María Þórunn Jónsdóttir. Varstjórn hefur verið óbreytt allan tímann en hana skipa: Einar Freyr Elínarson, Þóranna Másdóttir og Birgir Ragnarsson. Skoðunarmenn reikningar eru Fanney Ólafsdóttir og Rúnar Geir Ólafsson, varaskoðunarmenn eru Bryndís Óskarsdóttir og Henný Hrund Jóhansdóttir.
Hér má finna fundargerðir allra aðalfunda félagsins:

