Aðalfundur félags ungra bænda á Norðurlandi verður haldinn á Hótel Varmahlíð í Skagafirði þann 10. febrúar næstkomandi kl 20:00.
Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti:
Aðalfundur FUBN 2012Aðalfundur félags ungra bænda á Norðurlandi verður haldinn á Hótel Varmahlíð í Skagafirði þann 10. febrúar næstkomandi kl 20:00. Vel heppnuðu málþingi lokiðÞriðjudagskvöldið 6. des fór fram málþing á vegum FUBN um skipulagsmál. Þótti málþingið heppnast vel og var mæting rétt tæplega 40 manns. Arnar Árnason oddviti Eyjafjarðarsveitar og bóndi á Hranastöðum fræddi gesti um hvernig aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar er uppbyggt og hvernig áherslur Eyjafjarðarsveitar eru í skipulagsmálum. Borgar Páll Bragason jarðarræktaráðunautur hjá Bændasamtökunum flutti erindi í kjölfarið um hvernig bændasamtökin koma að vinnu sveitarfélaga í skipulagsvinnu. Felst það aðallega í því að skilgreina land sem hentar til landbúnaðar og að búa til staðal sem sveitarfélög geta haft til viðmiðunnar þegar þau ákvarða m.a. hvar hentugt akuryrkjuland þarf að verja. Fréttir að norðan, af VatnsendamönnumÞórir Níelsson skrifar: Á Vatnsenda í Eyjafjarðarsveit búa hjónin Sveinn Rúnar Sigmundsson og Guðný Óskarsdóttir með blandað bú, kýr og sauðfé. Þeir sem til þekkja vita að á þeim bænum hefur í mörg ár verið stunduð markviss búfjárrækt, bæði á kúm og kindum sem hefur skilað þeim viðurkenningum m.a. sauðfjárræktarverðlaunum BSE árið 2009. Það eru ekki bara kýr og kindur ræktaðar á Vatnsenda, því kettirnir á bænum eru duglegir að fjölga sér og vekur jafnan athygli hve margir hvítir kettir fæðast þar og margir kattareigendur í sveitinni og jafnvel víðar sem eiga kött sem er hægt að rekja í Vatnsenda. |
| Síða 1 af 4 |