Ungur bóndi

ÞÚ ERT HÉR: FORSÍÐA Deildir Austur Fréttir og pistlar

Fréttir og tilkynningar

Bændasæla á Bæjarhátíð á Ormsteiti 2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Í dag var FUBA með skemmtun fyrir börn og fullorðna á Bæjarhátíð á Ormsteiti, sem nefnd var Bændasæla. Þátttaka var góð þrátt fyrir smávægileg skúrir og ský. Bændasæla stóð saman af krakkaþraut fyrir þrjá aldurshópa, dráttarvélafimi fyrir fullorðna, sauðfjármarkagátu og svo var hestateyming fyrir krakka og smávægilegur dýragarður (kálfar, lömb, hestar, hænur og kettlingar). Bændasæla var haldin á planinu hjá Gæludýrabúðinni Kiddý, þar sem var opið fyrir gesti og gangandi. Kjötvinnslufyrirtækið Snæfell grillaði lamba-og svínakjöt fyrir þá sem á svæðinu voru og styrktaraðilar dagsins voru Landsstólpi, sem sá um grindur fyrir búfénaðinn, Jötunvélar og Fóðurblandan, sem sá um vinningana. Jötunnvélar útveguðu einnig dráttarvél fyrir dráttarvélafimina og UÍA eiga farandsbikarinn sem fylgir keppninni þar sem um löglega braut er að ræða og því keppt um Austurlandsmeistaratitilinn. Vinningshafinn var Þórarinn Páll Andrésson frá Fljótsbakka, annað árið í röð.

Þökkum við bændum sem komu með gripina, styrktaraðilum, gestina sem mættu, félagsmönnum FUBA og öllum öðrum sem hjálpuðu til við að gera þennan frábæran dag.

 

 

Myndir frá Sumargleði FUBA 2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Fleiri myndir frá Sumargleði FUBA í Hjaltalundi Hjaltastaðaþinghá þann 10. júní 2011 má sjá hér

Myndirnar tóku Anna Katrín Svavarsdóttir og Anna Lóa Sveinsdóttir

 

 

Sumargleði FUBA 2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

 

sumargledi_01Síðastliðinn föstudag (10. júní) hélt FUBA mikla Sumargleði að Hjaltalundi í Hjaltastaðaþinghá. FUBA bauð upp á grill og var síðan keppt í gríðarlega krefjandi þrautabraut.

 

Nánar...
 
Síða 1 af 2
Deila á Fésbók