Ungur bóndi

ÞÚ ERT HÉR: FORSÍÐA

Velkomin á vef ungra bænda

Aðalfundur félags ungra bænda á Suðurlandi

Aðalfundur félags ungra bænda á Suðurlandiverður haldinn sveitakránni Kríunni í Flóahreppi fimmtudaginn 23.febrúar næstkomandi kl. 20:30.

Dagskrá fundarins er sem hér segir:

Skýrsla og ársreikningar stjórnar 2011 kynnt.

Kosningar í stjórn.

Önnur mál.

Létt spurningakeppni að hætti hússins.

Hvetjum alla til að mæta, láta sig málefni félagsins varða og koma með tillögur á aðalfund SUB sem verður haldinn laugardaginn 25.febúar í Borgarfirði.

Nýir félagar velkomnir.

Stjórn F.U.B.S.

Nánar...
 

Árshátíð & aðalfundur S.U.B.

ÁIMG 1299rshátíð og Aðalfundur Samtaka ungra bænda, S.U.B., verður haldinn í Félagsheimilinu Brún í Borgarfirði þann 25. febrúar nk.

Dagskráin hefst fimmtudagskvöldið 23. febrúar með BúSvar-pubquiz keppni á Kollubar, Hvanneyri. Keppni hefst klukkan 20:30, vegleg verðlaun í boði. Föstudagskvöldið 24. febrúar verður svo umræðufundur um innflutning erlendra kúakynja í matsal Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri.

Laugardaginn 25. febrúar verður svo aðalfundurinn sjálfur frá 10:00-16:00 í Brún. Rétt er að taka fram að aðalfundur er öllum félagsmönnum SUB opin til áheyrnar þó aðeins kjörnir fulltrúar aðildarfélaganna hafi atkvæðisrétt. Klukkan 20:30 hefst svo árshátíð samtakanna þar sem boðið verður uppá þríréttað veisluhlaðborð.

Forréttarhlaðborð:            

Sveita og Hreindýrapaté með cumberlandsósu

Reyktur og grafinn lax með sinnepsdillsósu

Aðalréttur:                        

Ofnsteikt lambalæri með gratíneruðum kartöflum, grænmeti og villijurtasósu

Eftirréttur:                        

Ananasfrómas með rjómatopp

Veislustjóri verður Daníel Geir Moritz. Að loknu veisluhlaðborði mun hljómsveitin Sólon halda uppi stuðinu. Boðið verður upp á rútuferð frá Hvanneyri á árshátíðina í Brún, og aftur til baka að henni lokinni. Miðaverð á árshátíðina er 5000 krónur.

Þeir sem vilja geta fengið gistingu í Gamla skólanum á Hvanneyri og er verð eftirfarandi:

Svefnpokapláss í eins manns herbergi: 3000 kr.

Svefnpokapláss í tveggja manna herbergi: 2.500 kr.

Leiga á rúmfötum: 2000 kr. pr. dvöl

Miðapantanir (gott að taka fram hvort menn vilja rútu) og pantanir fyrir gistingu sendist á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir föstudaginn 24. febrúar.

Nánar...
 

NOR98: nauðsynlegur niðurskurður?

Jón H. Eiríksson skrifar:

Í fréttatilkynningu á heimasíðu Matvælastofnunar frá 1. febrúar síðastliðnum var tilkynnt að Nor98 hefði greinst í kind frá bænum Merki á Jökuldal og að ,,undirbúningur nauðsynlegs niðurskurðar" væri að hefjast eins og það er orðað þar. Mér finnst þetta í hæsta máta undarleg afstaða hjá Matvælastofnun.

Nor98 er sjúkdómur skyldur riðu en greinir sig þó frá henni í einu veigamiklu atriði: Nor98 virðist ekki smitast á milli einstaklinga við náttúrulegar aðstæður. Sjúkdómurinn hefur sjaldan komið upp í fleiri en einni kind á sama bæ og dreifing hans um heiminn virðist vera því sem næst tilviljunarkennd. Hvernig Nor98 verður til er ekki vitað en líklegasta skýringin er einhverskonar tilviljunarkennd breyting.

Nánar...
 

Aðalfundur F.U.B.V.V.

Aðalfundur félags ungra bænda á Vesturlandi og Vestfjörðum verður haldinn í húsnæði Búnaðarsamtaka Vesturlands á Hvanneyri þann 15. febrúar næstkomandi kl. 20:00. Hvetjum fólk til að mæta á fundinn og fyrir þá sem hafa áhuga á að komast í stjórn, þá verður kosið um ritarastöðu og meðstjórnendur.

Hefðbundin aðalfundarstörf, nánari dagskrá auglýst síðar.

Stjórn FUBVV

 
Síða 1 af 32
Deila á Fésbók

Myndagallerí

images/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/02_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/1_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/10_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/11_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/12_100_67.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/13_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/14_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/15_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/16_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/17_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/18_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/2_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/24_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/3_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/4_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/5_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/6_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/7_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/8_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/86_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/9_100_75.jpgimages/resized/images/stories//myndagallery/april2010gallery/sy-ra_skr-ugil__hestbaki_100_75.jpg